Forsíða |
Innlent | Erlent | Íþróttir | Tækni | Fólk | 200 mílur | Smartland | Matur | | Fjölskyldan | Sporðaköst | Bílar | K100 | Ferðalög | Viðskipti | Blað dagsins
Erlent
Evrópusambandið hefur veitt sænsku tollgæslunni fjárveitingu sem nemur 40 milljónum sænskra króna, jafnvirði 514 milljóna íslenskra króna, til kaupa á tveimur gegnumlýsingarbifreiðum sem eru þeim eiginleikum búnar að geta gegnumlýst heila gáma við tolleftirlit.
meira
Aud Kinsarvik Gravås, saksóknari í máli Zaniars Matapours, sem nú er réttað yfir í Ósló fyrir skotárásina á Pride-deginum þar í borg 25. júní 2022, krefst 30 ára fangelsisdóms yfir ákærða sem er söguleg refsikrafa í Noregi. Telur saksóknari árásarmanninn hafa vitað fullkomlega hvað hann var að gera og hann eigi sér engar málsbætur.
meira
Ökumaður hefur verið handtekinn vegna slyss sem varð átta manns að bana í norðurhluta Flórída í Bandaríkjunum í dag.
meira
Átta úr sem tilheyra Formúlu-1 goðsögninni Michael Schumacher voru seld á uppboði í Genf í Sviss í dag fyrir samtals fjórar milljónir svissneskra franka sem jafngildir tæplega 615 milljónum króna.
meira
Rússnesk stjórnvöld eru nú talin leggja á ráðin um árásir gegn Vesturlöndum.
meira
Í það minnsta 13 manns létu lífið þegar rúta steyptist ofan í gil í Ayacucho-héraði í Perú í dag.
meira
Ítalska lögreglan framkvæmdi allsherjar húsleitir hjá 142 grunuðum félögum Ndrangheta sem er ein af alræmdustu glæpasamtök heimsins.
meira
Bretar þurfa að reiða sig minna á innflutning ávaxta og grænmetis. Rishi Sunak, forsætisráðherra Bretlands, segir þetta mikilvægt til að tryggja fæðuöryggi sem sé í forgangi þegar hugað er að loftslagsóginni.
meira
Átta eru látnir og átta eru alvarlega slasaðir eftir rútuslys í norðurhluta Flórída í Bandaríkjunum í dag.
meira
Um 450 þúsund manns hafa flúið borgina Rafah í Palestínu, að sögn flóttamannahjálpar Sameinuðu Þjóðanna í Palestínu, síðan ísraelsk stjórnvöld biðluðu til íbúa um að rýma borgina þann 6. maí.
meira
Lögreglan í Kaíró í Egyptalandi hefur handtekið bílstjóra leigubílaþjónustunnar Uber sem grunaður er um tilraun til kynferðisofbeldis.
meira
Georgíska þingið samþykkti í dag fjölmiðlalög sem kveða á um að fjölmiðlar sem sækja meira en 20% fjármagns síns frá erlendu ríki, verði að skilgreina sig sem fjölmiðil sem starfar í þágu erlends ríkis.
meira
Ríkisstjórn Noregs hefur lagt til að einum milljarði norskra króna, eða um 13 milljörðum íslenskra króna, verði veitt til aðstoðar Palestínumönnum á þessu ári.
meira
Þingmönnum breska þingsins gæti verið meinaður aðgangur að þinginu og þeim vikið úr embætti verði þeir handteknir vegna gruns um kynferðis- eða ofbeldisbrot.
meira
Þrír franskir fangaverðir voru drepnir og tveir aðrir særðir, þegar árás var gerð á fangaflutningavagn í Eure-héraði í Frakklandi í morgun.
meira
Friðrik Danakonungur og María drottning eru komin til Noregs í sína fyrstu opinberu heimsókn þangað sem konungshjón sem hófst í morgun og voru viðtökurnar ekki af verri endanum þar sem norsku konungshjónin og krónprinshjónin tóku á móti danska kóngafólkinu.
meira
Austurrískur héraðsdómstóll hefur samþykkt flutning kynferðisbrotamannsins alræmda, Josef Fritzl, yfir í venjulegt fangelsi.
meira
Yfirvöld í Hollandi hafa sektað framleiðendur tölvuleiksins Fortnite, Epic Games, um 1,1 milljón evra, eða rúmar 150 milljónir íslenskra króna. Sektin byggir á því að tölvuleikurinn útsetji viðkvæm börn fyrir kaupum á vörum í verslun leiksins.
meira
Búist er við því að lögmenn Donalds Trumps, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, muni sækja hart að fyrrverandi lögmanni hans, Michael Cohen, í vitnastúku seinna í dag.
meira
Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir hergögn frá Bandaríkjunum á leið til Úkraínu og fullyrðir að þau muni hafa mikið að segja.
meira
fleiri