Aldrei meira til Austfjarða úr fiskeldissjóði

Fiskeldissjóður úthlutaði meira en fjögur hundruð milljónum á þessu ári. …
Fiskeldissjóður úthlutaði meira en fjögur hundruð milljónum á þessu ári. Það er meira en fjórfalt það sem var í boði þegar fyrsta úthlutunin átti sér stað 2021. mbl.is/Helgi Bjarnason

Stjórn fiskeldisjóðs úthlutaði 437,2 milljónum króna til sextán verkefna í sjö sveitarfélögum í síðustu viku. Þar var úthlutað 191,5 milljón til verkefna á Austurlandi og er það fjórföld upphæð sem fékkst á síðasta ári.

Verkefni á Vestfjörðum hlutu 245,7 milljónir, en það er rúmlega 22% meira en úthæutað var á því svæði á síðasta ári.

Í tilkynningu á vef stjórnarráðsins kemur fram að sjóðnum barst 29 umsóknir frá átta sveitarfélögum, samtals að fjárhæð rúmlega 1,5 milljarður króna, sem er meira en þrefalt hærri fjárhæð en var til úthlutunar.

Sjóðurinn er fjármagnaður með gjöldum á sjókvíaeldi og er honum ætlað að veita sveitarfélögum styrki til uppbyggingar innviða, þar sem fiskeldi í sjókvíum er stundað, og styrkja þar með samfélög og stoðir atvinnulífs á þeim svæðum.

Fyrsta úthlutun sjóðsins átti sér stað 2021 og voru þá 105 milljónir í boði, en sjóðurinn hefur stækkað í takti við aukningu í framleiðslu fiskeldis og aukna álagningu á eldi hér á landi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 16.5.24 417,41 kr/kg
Þorskur, slægður 16.5.24 507,10 kr/kg
Ýsa, óslægð 16.5.24 330,67 kr/kg
Ýsa, slægð 16.5.24 262,73 kr/kg
Ufsi, óslægður 16.5.24 143,03 kr/kg
Ufsi, slægður 16.5.24 154,98 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 16.5.24 214,94 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

16.5.24 Beta Sara ÍS 42 Handfæri
Þorskur 759 kg
Samtals 759 kg
16.5.24 Dagrún HU 121 Handfæri
Þorskur 797 kg
Samtals 797 kg
16.5.24 Bára NS 126 Handfæri
Þorskur 827 kg
Samtals 827 kg
16.5.24 Magnús HU 23 Grásleppunet
Grásleppa 1.471 kg
Samtals 1.471 kg
16.5.24 Bibbi Jónsson ÍS 65 Grásleppunet
Grásleppa 1.916 kg
Þorskur 31 kg
Rauðmagi 20 kg
Samtals 1.967 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 16.5.24 417,41 kr/kg
Þorskur, slægður 16.5.24 507,10 kr/kg
Ýsa, óslægð 16.5.24 330,67 kr/kg
Ýsa, slægð 16.5.24 262,73 kr/kg
Ufsi, óslægður 16.5.24 143,03 kr/kg
Ufsi, slægður 16.5.24 154,98 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 16.5.24 214,94 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

16.5.24 Beta Sara ÍS 42 Handfæri
Þorskur 759 kg
Samtals 759 kg
16.5.24 Dagrún HU 121 Handfæri
Þorskur 797 kg
Samtals 797 kg
16.5.24 Bára NS 126 Handfæri
Þorskur 827 kg
Samtals 827 kg
16.5.24 Magnús HU 23 Grásleppunet
Grásleppa 1.471 kg
Samtals 1.471 kg
16.5.24 Bibbi Jónsson ÍS 65 Grásleppunet
Grásleppa 1.916 kg
Þorskur 31 kg
Rauðmagi 20 kg
Samtals 1.967 kg

Skoða allar landanir »