Stjörnuspá mán. 29. apr. 2024

Stjörnuspá
mán. 29. apr. 2024

21. mars - 19. apríl

Þetta er góður dagur til að ræða vandamál sem hafa komið upp í vinnunni. Reyndu að skoða málin frá öllum hliðum án tillits til þess hvað hentar þér.

20. apríl - 20. maí

Það er aftur orðið of mikið að gera hjá þér. Leggðu sérstaklega mikið á þig í verkefnum sem tengjast heimili og fjölskyldu í dag.

21. maí - 20. júní

Þú leggur mikið á þig til þess að öðlast öryggi í lífinu og það er vel. Aðstoð maka eða einhvers annars vinar mun færa þér meiri sálarró.

21. júní - 22. júlí

Þú ert að reyna að gera of margt í einu. Með glaðværð og samvinnu við aðra geturðu komið miklu í verk í dag.

23. júlí - 22. ágúst

Tíma með góðum vinum er alltaf vel varið og þú átt að láta það eftir þér í ríkara mæli. Reyndu að hvílast og hlaða batteríin að nýju.

23. ágúst - 22. september

Það fer ekki vel á því að blanda saman málum heimilisins og vinnustaðarins. Ekki óttast að axla aukna ábyrgð nú því þú munt auðveldlega standa undir henni.

Vog
23. september - 22. október

Allt sem viðkemur vinnu þinni og starfsframa gengur vel á næstunni. Mundu að þú hefur skyldum að gegna við sjálfan þig og umfram aðra.

23. október - 21. nóvember

Einhverjir hnökrar koma upp í fjármálunum og það kostar þolinmæði og tíma að greiða úr þeim. Veltu því fyrir þér hverju þarf að breyta og hvað þarfnast endurbóta.

22. nóvember - 21. desember

Væntingar annarra til þín munu líklega koma þér í opna skjöldu í dag eða þá að eitthvað stendur ekki undir væntingum þínum. Hlustaðu eins vel og þú getur.

22. desember - 19. janúar

Taktu ekki allt bókstaflega sem þú heyrir heldur sannreyndu það sjálfur. Vertu ánægður með þinn hlut.

20. janúar - 18. febrúar

Viðskipti geta verið varasöm, þegar ekkert tillit er tekið til aðstæðna. Þú hefur lagt hart að þér og munt nú uppskera laun erfiðis þíns.

19. febrúar - 20. mars

Einhver gerir mikið úr smáatriðum í dag svo sýnin á heildarmyndina fer forgörðum. Sýndu eðlileg viðbrögð og miðaðu þau við eðli málsins.

Hvernig eiga merkin saman?

Veldu stjörnumerki úr valgluggunum að neðan og smelltu svo á Birta.
og