Tökur á fjórðu myndinni um ævintýri Lundúnadömunnar Bridget Jones hefjast á þessu ári. Leikkonan Renée Zellweger þarf að flytja til Lundúna þess vegna og í þetta skiptið flytur kærastinn með henni.
Zellweger er búin að vera í sambandi með bandaríska fjölmiðlamanninum Ant Anstead í þrjú á og búa þau saman í Kaliforníu. Anstead er sagður spenntur að flytja tímabundið til Lundúna. „Ant fer yfir til Bretlands með Renée á meðan hún verður í tökum seinna á þessu ári,“ sagði heimildarmaður People. „Ant er spenntur að verja tíma með eldri börnum sínum.“
Anstead er breskur og því ekki ekki óvanur lífinu í Bretlandi. Á hann 20 ára og 17 ára gömul börn með fyrstu eiginkonu sinni. Hann á hins vegar einnig fjögurra ára gamlan son með annarri fyrrverandi eiginkonu sem býr í Kaliforníu.