Franski leikarinn Gerard Depardieu er í haldi lögreglu vegna gruns um kynferðisbrot.
Heimildir AFP-fréttastofunnar herma að lögregla sé að yfirheyra hann vegna áskana tveggja kvenna um kynferðisofbeldi.
Er annað brotið sagt hafa átt sér stað við tökur á kvikmynd árið 2021 og hitt við tökur árið 2014.
Leikarinn frægi hefur margsinnis verið sakaður um kynferðislega áreitni og kynferðislegt ofbeldi, þar á meðal fyrir nauðgun árið 2018.
Í desember var Depardieu sviptur tveimur heiðursmerkjum vegna ósæmilegra ummæla hans í garð kvenna.
Fréttin hefur verið uppfærð.