Forsætisráðherra Spánar, Pedro Sánchez, hyggst ekki segja sig frá embættinu vegna ásakana um spillingu á hendur eiginkonu hans.
„Ég hef ákveðið að vera áfram,“ sagði Sánchez í ávarpi í dag en hann hefur verið við völd frá árinu 2018.
Miklar vangaveltur hafa verið uppi um framtíð hans í embættinu en hann hefur ekki sinnt hefðbundnum störfum síðustu fimm daga til að íhuga stöðu sína sem forsætisráðherra.
Kvaðst Sánchez hafa nýtt síðustu daga til ígrundunar á vaxandi skautun í stjórnmálum, sem hann sagði í auknum mæli stjórnast af upplýsingaóreiðu.
Tilkynnti hann í síðustu viku að hann hygðist íhuga afsögn sína í kjölfar ákvörðunar dómara um að hefja rannsókn á fyrirtæki eiginkonu hans, Begoñu Gómez, eftir að samtökin Manos Limpias ásökuðu hana um að nýta sér stöðu sína til hagsbóta fyrir fyrirtækið.
Manos Limpias, sem þýðist sem Hreinar hendur, eru sögð hafa tengsl við öfgakennda þjóðernissinnahópa og hefur Sánchez kallað ásakanirnar eineltisherferð á vegum hægrisinnaðra fjölmiðla.
Á fimmtudag krafðist ríkissaksóknari í Madríd þess að rannsókninni yrði hætt vegna skorts á sönnunargögnum. Viðurkenndu Manos Limpias einnig að ásakanirnar gætu verið rangar þar sem þær væru byggðar á netfréttum sem samtökin gætu ekki staðfest, en ein ásökunin hefur þegar reynst röng.