Ný vísitala íbúðaverðs var 101,9 í febrúar 2024 og hækkaði um 1,9 prósent á milli mánaða. Þetta er í fyrsta sinn sem þessi vísitala er birt en 100-gildi hennar miðar við janúar 2024.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Með nýju vísitölunni má sjá verðþróun eftir landssvæðum og íbúðaflokkum, en gamla vísitalan sýndi einungis verðþróun á höfuðborgarsvæðinu.
Ásamt vísitölu fyrir landið allt gefur HMS nú út fjórar undirvísitölur íbúðaverðs, en þær eru fyrir sérbýli og fjölbýli, bæði á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni.
Vísitala íbúðaverðs sérbýla á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 1,1% á milli mánaða. Það er minnsta hækkunin. Mesta hækkunin var á fjölbýlum á landsbyggðinni, eða 6,4%.
Sérbýli á landsbyggðinni hækkuðu um 1,4% á meðan fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu hækkuðu um 2,1%.
Nýja vísitalan endurspeglar einnig betur verðsveiflur á milli mánaða og hefur breyting á vísitölum ekki áhrif á verðbólgumælingar Hagstofu.
Þannig ætti vísitalan til dæmis ekki að taka breytingum ef hátt meðalkaupverð í einum mánuði skýrist af háu hlutfalli nýlegra eigna eða öðrum eiginleikum sem tekið er tillit til í fasteignamati.
Á myndinni má sjá nýja vísitölu íbúðaverðs bakreiknaða frá janúar 2023. Eins og myndin sýnir má greina einhverjar sveiflur á milli mánaða í nýju vísitölunni á tímabilinu.
Þar sem vísitalan byggir einungis á gögnum síðastliðins mánaðar tekur hún hraðar við sér ef markaðurinn hreyfist heldur en eldri vísitala sem notaðist við upplýsingar síðastliðinna þriggja mánaða.