Ökumaður á fimmtugsaldri var handtekinn í kvöld eftir að lögregla veitti honum eftirför í Voga- og Laugarneshverfi. Mikil hætta er sögð hafa stafað af aksturslagi mannsins, sem keyrði á ofsahraða í vistgötum.
Eins og mbl.is greindi frá í kvöld stóð mikil lögregluaðgerð yfir í Vogahverfi í Reykjavík þar sem lögreglumenn eltust við lítinn fólksbíl.
Lögreglu hafði borist tilkynningar frá vegfarendum um kl. 19 í kvöld um undarlegt aksturslag mannsins en hann er grunaður um akstur undir áhrifum áfengis og vímuefna, að sögn Unnars Más Ástþórssonar, aðalvarðstjóra lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Um átta mínútum síðar var maðurinn handtekinn. Unnar segir í samtali við mbl.is að svo virðist sem aðeins einn hafi verið í bílnum.
Margir urðu vitni að háskaför ökumannsins, auk þess sem að mikið sírenuvæl heyrðist í hverfinu.
„Þetta er eftirför sem hefst í Vogahverfinu, hún fer um það hverfi og upp að Glæsibæ og þangað aftur til baka þar sem hann er stoppaður aftur í hverfinu,“ segir aðalvarðstjórinn.
Ökumaðurinn hafi þar valdið mikilli hættu með aksturslagi sínu, meðal annars með því að aka á ógnarhraða á móti umferð og uppi á gangstétt. Ekkert bendir til þess að nokkurn hafi sakað.
„Hann er núna komin í varðhald hjá okkur. Það verður skýrsla tekin af honum annað hvort í kvöld eða á morgun,“ segir Unnar enn fremur. „Svo verður bara tekin ákvörðun með framhaldið.“
Sérsveitin aðstoðaði við aðgerðirnar, samkvæmt upplýsingum frá ríkislögreglustjóra. Aðgerðin var þó á vegum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.