Ferðaskrifstofur sömdu við Neos

Ný og glæsileg flugvél með WI-FI tengingu mun verða notuð …
Ný og glæsileg flugvél með WI-FI tengingu mun verða notuð í flugi ferðaskrifstofanna. Mynd/Aðsend

Heimsferðir, Úrval Útsýn, Plúsferðir og Sumarferðir hafa gengið frá samningi við Neos-flugfélagið, sem mun sinna leiguflugi fyrir ferðaskrifstofurnar til allra áfangastaða í sumar og fram á næsta ár.

Í tilkynningu segir að ný flugvél með Wifi-tengingu muni verða notuð í flugi ferðaskrifstofanna.  Brottfarir frá Keflavík verða klukkan 9 að morgni og flugin heim eru miðuð að því að gera heimferðina þægilega fyrir fjölskyldur, að því er segir í tilkynningu. 

Ferðir frá Akureyri og Egilstöðum

Flugin í vor og sumar verða til Alicante, Almeria, Krítar, Verona og Tenerife. Þá verður einnig flogið til Zagreb, Split og Portúgal. Í haust bætast við margir spennandi áfangastaðir eins og t.d. Sikiley og Lecce á Ítalíu, Budva í Svartfjallalandi, Punta Cana í Karabíska hafinu og Kanarí.

Einnig verða í boði ferðir frá Akureyri til Tenerife, Alicante og Calarbria á Ítalíu. Auk þess er í boðið borgarferð frá Egilsstöðum til Verona.

Á sama tíma var gerður samningur um sölu á 2.000 sætum til ítalskra ferðaskrifstofa og mun þetta opna möguleika á aukningu ítalskra ferðamanna til Íslands, en Alpitours, stærsta ferðaskrifstofa Ítalíu, mun annast sölu sætanna, að því er segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert