Hlutverk björgunarsveita verði endurskoðað

Björgunarsveitir af öllu landinu hafa komið að verkefnum í Grindavík …
Björgunarsveitir af öllu landinu hafa komið að verkefnum í Grindavík síðustu misserin jafnhliða fjölmörgu öðru sem þarf að sinna. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Þegar almannavarnaástand er ríkjandi svo árum skiptir hljóta eðlilega að vakna spurningar um hve lengi nauðsynlegri gæslu og öryggisráðstöfunum sé sinnt af sjálfboðaliðum,“ segir Borghildur Fjóla Kristinsdóttir, formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar.

„Þanþolið í þeim efnum er ekki óendanlegt, enda þótt okkar fólk sé jafnan reiðubúið að koma til aðstoðar við leit, björgun og afmörkuð verkefni í mjög skamman tíma. Nú þarf að endurskoða mál og samtal um slíkt er hafið.“

Þurfa að hlaupa frá vinnu og fjölskyldu

Í eldgosum og umbrotum við Grindavík síðustu árin hafa björgunarsveitir af öllu landinu sinnt þar öryggisgæslu og öðrum slíkum verkefnum. Alls eru um 4.500 manns á útkallsskrá sveitanna, um 1,2% landsmanna. Stór hluti þess fólks hefur einmitt verið á vaktinni suður með sjó. „Fólk getur auðvitað ekki alltaf hlaupið frá vinnu og fjölskyldu til þess að fara í útköll eða verkefni,“ segir Fjóla.

Borghildur Fjóla.
Borghildur Fjóla. mbl.is/Sigurður Bogi

„Við höfum því leitað eftir því að einhverju sé af okkar fólki létt, svo sem að manna lokunarpósta. Slíku er í dag sinnt af öryggisfyrirtækjum og fleira þyrfti að taka með líku lagi, rétt eins og við höfum rætt við lögreglu og fleiri. Eftir umbrot í Grindavík sem nú hafa staðið með hléum í þrjú ár þarf að hugsa málin upp á nýtt. Ekki er hægt að ætlast til þess að vinnuveitendur björgunarsveitafólks eða fjölskyldur þess gefi endalaust eftir.“

Fjóla hefur starfað í björgunarsveitum í áraraðir og setið í stjórn Slysavarnafélagsins Landsbjargar frá 2019. Formennskuna fékk hún í fangið síðasta haust þegar Grindvíkingurinn Otti Rafn Sigmarsson formaður félagsins fékk leyfi frá störfum vegna anna við eigin verkefni í heimabæ sínum. Nýlega gaf Otti endanlega frá sér formannsembættið, sem Fjóla hefur nú með höndum að minnsta kosti fram á næsta ár. Hún hefur síðustu árin unnið með björgunarsveitinni Gerpi í Neskaupstað, en er nú í Ársæli í Reykjavík þar sem hún var áður.

Umfjöllunina í heild sinni má nálgast í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert