Vindur norðlægari í dag

Hiti verður á bilinu 2 til 12 stig.
Hiti verður á bilinu 2 til 12 stig. mbl.is/Kristinn Magnússon

Vindur verður norðlægari í dag en um helgina.

Strekkingur á Austfjörðum en annars hægari vindur.

Lítilsháttar skúrir eða él verða á Norður- og Austurlandi en bjart með köflum suðvestanlands. Hiti verður á bilinu 2 til 12 stig, mildast verður syðst.

Á morgun er útlit fyrir norðan golu eða kalda.

Bjart veður verður sunnan heiða en skýjað og úrkomulítið norðan til. Hiti breytist lítið.

Veðurvefur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert