Við lifum á tímum ofgnótts og allsnægta. Úrvalið er endalaust. Við getum til að mynda fengið kaffibollann framreiddann á óteljandi ljúffenga vegu en hefur einhver prófað prestaveginn?
Krónupeningur er settur á botn í drykkjarkönnu. Síðan er kaffi hellst í drykkjarílátið, þar til ekki sést lengur í krónuna. Að því loknu eru brennivíni eða álíka vökva bætt út í kaffið, þangað til krónupeningurinn kemur í ljós á ný. Þar með er komið prestakaffi.