Feðgarnir Elvar Ingimarsson og Natan Þór Elvarsson hafa opnað í nýjan sportbar í Urriðaholtinu, við Urriðaholtsstræti 2-4 sem ber heitið Geitin. Fyrir var veitingastaðurinn Bar- Bistro 212. Staðurinn býður upp á ekta sportbars-matseðil í bland við skemmtilega íþrótta-stemningu, þar sem helstu íþróttaviðburðir eru sýndir í beinni útsendingu.
Feðgarnir hafa verið saman í veitingabransanum í nokkur ár og vinna vel saman.
„Við höfum aðeins verið í veitingabransanum, í dag er það sportbarinn Geitin í Garðabæ en það er okkar fyrsti sportbar. Við búum á svæðinu og sáum glugga fyrir einn slíkan og hefur það sýnt sig að greinilega var pláss fyrir eina Geit á svæðinu. Sérstaða Geitarinnar er að hún er eina Geitin í Garðabæ utan við IKEA geitina sem er meira árstíðabundin,“ segir Elvar og brosir.
Hvernig hafa viðtökur verið frá því staðurinn opnaði?
„Viðtökurnar hafa verið mjög góðar og eiginlega frábærar miðað við árstíma. Geitin lítur björtum augum á framtíðina og er veit hvort þeim fjölgi á árinu,“ segir Elvar en engin lognmolla er kringum þá feðga þessa dagana og verkin eru mörg.
„Einnig erum við að opna veitingastaðinn Ítalíu í dag á nýjum stað á Frakkastíg 8b. En sá staður fær stóra uppfærslu frá því sem áður var. Einnig er í bígerð að opna stað í miðbænum í mars – apríl sem áður hefur hýst veitingastaði í gegnum árin, en það verður skemmtileg nýjung í veitingahúsaflóruna,“ segir Elvar að lokum.