Það hefur verið létt yfir landsmönnum að undanförnu sem hafa notið hvers sólargeisla til hins ýtrasta og vilja sumir meina að nú sé vorið komið. Það er margt skemmtilegt sem kemur með vorinu, þar á meðal eru árshátíðir skóla og fyrirtækja.
Á óskalista vikunnar finnur þú því allt það heitasta fyrir árshátíðina – allt frá glæsilegum síðkjól og ofurskvísuskóm yfir í hinn fullkomna kinnalit og tímalaust skart!
Þessi glæsilegi síðkjóll á heima í öllum fataskápum. Hann er í senn klassískur og tímalaus með heillandi sniði og opnu baki sem setur punktinn yfir i-ið.
Lúxus kinnaliturinn frá Sisley Paris er fullkominn fyrir árshátíðarförðunina. Hann uppfyllir allar óskir fyrir kvöldið og gefur kinnunum þetta heilbrigða og ljómandi yfirbrað sem alla dreymir um!
Blúndan hefur verið að gera allt gjörsamlega vitlaust í tískuheiminum að undanförnu – hvernig hljómar að taka dressið einu skrefi lengra og mæta í trylltum blazer-jakka úr blúnduefni á árshátíðina?
Þessi fallegi hringur er hönnun eftir Trine Tuxen sem hreinlega klikkar ekki. Hringurinn er einfaldur en á sama tíma eftirtektarverður!
Ef þig langar að vera alvöru skvísa á árshátíðinni þá skaltu veðja á þessa skó frá íslenska merkinu Kalda. Þeir eru engu líkir og munu án efa taka árshátíðardressið upp á næsta „level“!
Það eru öll fallegu smáatriðin, og auðvitað liturinn, sem gera þennan satín samfesting frá Hugo svo flottann – allt frá fallegu V-hálsmáli yfir í skemmtilega klauf á buxnarskálmunum.
Það getur verið flókið að finna góða partítösku. Hún þarf að vera nógu stór fyrir það allra nauðsynlegasta, en hún má samt ekki vera of stór því þá fer maður að taka með sér allskonar óþarfa dót og taskan verður óþægilega þung. Þessi er hins vegar fullkomin í partíið!
Þetta er árshátíðarkjóllinn fyrir þá sem eru komnir í vorfíling! Undurfagrir litatónar og flott snið með sumarlegu yfirbragði einkenna kjólinn.
Það er lítið mál að dressa þessar flottu buxur upp fyrir árshátíðina. Þær eru í skemmtilegu sniði og úr fallegu efni sem passar við allt!
Árshátíðin er svolítið eins og áramótin – því meira glimmer, því betra! Á þessu kvöldi er fullkomið að draga fram uppáhaldsglimmerið og setja á augnlokin, en þetta glimmer frá NYX má hins vegar líka nota á aðra hluta andlitsins og á líkamann!