Aston Villa og Chelsea skildu jöfn, 2:2, þegar liðin áttust við á Villa Park í Birmingham í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Aston Villa glutraði niður tveggja marka forskoti.
Aston Villa komst yfir eftir þriggja mínútna leik með sjálfsmarki Marc Cucurella. Morgan Rogers kom heimamönnum í 2:0 skömmu fyrir hálfleik og leit allt út fyrir að Villa-menn ættu sigurinn vísan.
Sú var ekki raunin því Noni Madueke og Conor Gallagher skoruðu sitt markið hvor í síðari hálfleik og jöfnuðu metin, 2:2. Mark var dæmt af Axel Disasi í uppbótartíma og Chelsea menn voru bálreiðir við dómara leiksins í leikslok.
Chelsea situr sem fastast í 9. sæti en Aston Villa hefði þurft stigin þrjú í baráttu sinni fyrir Meistaradeildarsæti.