Verður Valur Íslandsmeistari annað árið í röð?

Valskonur geta orðið Íslandsmeistarar annað árið í röð.
Valskonur geta orðið Íslandsmeistarar annað árið í röð. mbl.is/Eyþór Árnason

Valur getur orðið Íslandsmeistari í handknattleik kvenna annað árið í röð með sigri á Haukum á Hlíðarenda í kvöld.

Valskonur hafa verið magnaðar á tímabilinu og nú þegar tryggt sér bikarmeistaratitilinn. Liðið hefur aðeins tapað einum leik á Íslandi á tímabilinu, gegn Haukum í deildarkeppninni. 

Valur er 2:0-yfir en þrjá sigra þarf til að verða Íslandsmeistari. Valsliðið vann fyrsta leikinn á Hlíðarenda með minnsta mun 28:27 en annar leikurinn á Ásvöllum fór 30:23 fyrir Val. 

Leikurinn hefst klukkan 19.40 og verður í beinni textalýsingu á mbl.is. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert